Fotbolti.net
09.05.23 - 22:44
Brynjar Ingi Erluson

Alfie Haaland vísað úr stúkunni - Sakaður um að hafa kastað mat í stuðningsmenn Real Madrid

Alfie Haaland vísað úr stúkunni - Sakaður um að hafa kastað mat í stuðningsmenn Real Madrid
Canon

Mynd: Getty Images

Alf-Inge Haaland, faðir Erling, var rekinn úr einkastúkunni á Santiago Bernabeu-leikvanginum er hann fylgdist með syni sínum spila gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Þessi fyrrum fótboltamaður er sakaður um að hafa kastað mat og móðgað fólkið sem var fyrir neðan hann í stúkunni og var hann á endanum fjarlægður af leikvanginum.

Einn stuðningsmaður Real Madrid birti myndskeið af Haaland er hann kvaddi og sést hann þar í fylgd með öryggisvörðum.

Inaki Angulo segir frá því á Twitter að honum hafi verið sent myndbandið af Haaland og var tjáð að Haaland kastaði matarleifum og móðgaði stuðningsmennina sem sátu fyrir neðan hann en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.