Fotbolti.net
09.05.23 - 17:59
Brynjar Ingi Erluson

De Gea samþykkir nýjan samning - Ekki víst að hann verði markvörður númer eitt

David De Gea

David De Gea

Canon

Mynd: Getty Images

David De Gea, markvörður Manchester United, hefur samþykkt nýjan samning við félagið en þetta kemur fram í Telegraph í dag.
Spænski markvörðurinn hefur verið í samningaviðræðum við United síðustu mánuði en þær hafa gengið hægt og var óljóst hvort hann yrði áfram hjá félaginu.

Telegraph segir nú að hann hafi náð samkomulagi við United og mun hann lækka í launum en í dag þénar hann um 350 þúsund pund á viku. Samningur De Gea átti að renna út í sumar en lengd nýja samningsins kemur ekki fram í frétt Telegraph.

De Gea fær enga tryggingu í samningnum um að hann verði markvörður númer eitt hjá félaginu en Erik ten Hag, stjóri félagsins, segist þó treysta honum fullkomlega þrátt fyrir að hann hafi gert afdrifarík mistök í mikilvægum leikjum á þessu tímabili.

Jack Butland hefur verið varamarkvörður United ásamt Tom Heaton á þessari leiktíð, en þá hefur ekki verið tekið ákvörðun um framtíð Dean Henderson, sem er á láni hjá Nottingham Forest.

Það er ekki forgangsatriði hjá félaginu að styrkja markvarðarstöðuna í sumar, en félagið leitast eftir því að fá miðjumenn og sóknarmenn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.