Fotbolti.net
09.05.23 - 16:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fjórir í banni þegar KR mætir Breiðabliki

Theodór Elmar tekur út leikbann á laugardag.

Theodór Elmar tekur út leikbann á laugardag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Á laugardag mætast KR og Breiðablik í sjöundu umferð Bestu deildarinnar.

Fjórir leikmenn taka út leikbann í leiknum vegna fjögurra gulra spjalda í sumar. Það eru tveir úr hvoru liði: Anton Logi Lúðvíksson og Viktor Karl Einarsson hjá Blikum og Aron Þórður Albertsson og Theodór Elmar Bjarnason hjá KR.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson, leikmaður ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið fyrir tæpri viku síðan þegar ÍBV heimsótti Fram. Hann er úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir brottvísunina. Fyrri leikinn af banninu tók hann út gegn Víkingi í gær og seinni leikurinn verður svo gegn Stjörnunni á laugardag.

Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hjá Keflavík tekur þá út leikbann vegna fjögurra gulra spjalda þegar Keflavík tekur á móti HK.

Holly Oneill Taylor hjá kvennaliði ÍBV var þá úrskurðuð í tveggja leikja bann í kjölfar brottvísunar sinnar gegn Þór/KA á sunnudag.

7. umferð Bestu karla:
laugardagur 13. maí
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)
16:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
16:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)

sunnudagur 14. maí
17:00 Keflavík-HK (HS Orku völlurinn)
19:15 Fylkir-Fram (Würth völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.