Fotbolti.net
09.05.23 - 17:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nefnir Orra Stein sem einn þriggja sem hann vill fá fyrir næsta tímabil

Orri Steinn Óskarsson.

Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jesper Thygesen, fyrrum leikmaður Silkeborg, hefur lagt það til að félagið reyni að fá Orra Stein Óskarsson á láni frá FC Kaupmannahöfn fyrir næstu leiktíð.
Orri Steinn, sem er 18 ára, hefur leikið með SönderjyskE á láni seinni hlutann á þessu tímabili.

Hann er búinn að skora fjögur mörk í ellefu leikjum í dönsku 1. deildinni á þessu tímabili.

Thygesen var að ræða við Viaplay og nefndi þar þrjá leikmenn sem hann vildi fá í Silkeborg fyrir næstu leiktíð. Orri var einn þeirra þriggja sem hann nefndi.

„Hann er sterkur í að klára færi og er öflugur í að tengja við leikmennina í kringum sig. Hann er 18 ára gamall og þarf aftur að fara á láni," sagði Thygesen.

Silkeborg er í þriðja sæti í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar en liðið endaði í þriðja sæti efri hlutans á síðasta tímabili. Stefán Teitur Þórðarson er einn af leikmönnum liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.