Segja að mark De Bruyne hafi ekki átt að standa - „Skil ekki af hverju VAR skoðaði ekki atvikið“

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kevin De Bruyne skoraði jöfnunarmark Manchester City gegn Real Madrid á Santiago Bernabeu í kvöld, en átti það að standa?
Manchester City skoraði eftir góða sókn. Ilkay Gündogan kom boltanum á De Bruyne sem stóð rétt fyrir utan vítateiginn og hamraði boltanum í vinstra hornið.
BeIN Sports sýndi frá því í aðdragandanum er Bernardo Silva hélt boltanum inn á vellinum en þeir skoðuðu það betur og töldu að boltinn hafi verið farinn útaf.
Man City skoraði í kjölfarið en Carlo Ancelotti, þjálfari Madrídinga, fannst skrítið að þetta hafi ekki verið skoðað.
„Boltinn var farinn útaf. Það er bara þannig og tæknin sagði það og ég skil ekki af hverju VAR skoðaði ekki atvikið. Það var ansi margt sem fór framhjá dómaranum í kvöld,“ sagði Ancelotti.

???? According to Bein Sports technology, the ball went out of the field. The Man City goal should’ve been disallowed.
????? "The VAR normally should check if the goal is regular or not, in a situation like that - they have to intervene. They did not go far enough back to check."
— beIN SPORTS (@beINSPORTS_EN) May 9, 2023
FIFA's Chief of Global Football Development Arsene Wenger has his say on @ManCity's equaliser...#beINUCL #RMAMCI #UCL pic.twitter.com/xM67s3gY2v