Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. júní 2021 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lið 6. umferðar - Fjórar úr Kef og Katie á sínum stað
Keflavík vann sigur og er með fimm fulltrúa
Keflavík vann sigur og er með fimm fulltrúa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásdís karen
Ásdís karen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjötta umferð Pepsi Max-deildar kvenna fór fram á laugardag og sunnudag. Komið er að því að opinbera lið vikunnar.

Keflavík er með fimm fulltrúa í liði umferðarinnar eftir útisigur gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Aerial Chavarin var best á vellinum og skoraði tvö mörk í þessum 1-3 útisigri. Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, er þjálfari umferðarinnar og Tiffany Sornpao ver mark úrvalsliðsins.

Natasha Anasi var frábær í sínu hlutverki í miðverðinum og Kristrún Ýr Holm átti mjög góðan leik í vinstri bakverðinum.



Í Vestmannayejum unnu heimkonur 2-1 sigur á toppliði Selfoss. Þóra Björg Stefánsdóttir átti frábæran leik, skoraði og lagði upp og er fulltrúi eyjakvenna í liði umferðarinnar.

Á Króknum unnu Valskonur 0-5 útisigur og skoraði Elín Metta Jensen tvö mörk í leiknum og var valin best á vellinum. Ásdís Karen Halldórsdóttir lagði upp tvö mörk í leiknum og skoraði eitt. Hún er einnig í úrvalsliðinu.

Í Árbænum vann Stjarnan 1-2 útisigur. Málfríður Erna Sigurðardóttir og Anna María Baldursdóttir voru eins og klettar í vörninni og þá skoraði Betsy Doon Hassett sigurmarkið.

Á sínum stað í liðinu er Katherine Amanda Cousins, Katie Cousins í fimmta sinn í sumar. Hún skoraði eitt af mörkum Þróttar í 1-3 útisigri á Akureyri. Katie hefur verið frábær í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner