Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal fann nýjan yfirlækni: Portúgalskur spretthlaupari
Mynd: EPA
Arsenal rak yfirlækninn sinn Zafar Iqbal á dögunum og er að ganga frá ráðningu á Arnaldo Abrantes í hans stað.

Abrantes er 39 ára gamall, 24 árum yngri heldur en Iqbal, og rennur út á samningi hjá Aston Villa eftir tímabilið en þar áður starfaði hann hjá Nottingham Forest.

Hann var yfirlæknir hjá Villa í tvö ár og hjá Forest í þrjú ár en hann lærði læknisfræði á meðan hann starfaði sem spretthlaupari.

Abrantes er portúgalskur og varð Portúgalsmeistari í 100 og 200 metra spretthlaupi. Hann keppti fyrir þjóð sína á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og London 2012.

Mikel Arteta þjálfari Arsenal er ekki ánægður með meiðslavandræðin sem hafa verið að hrjá liðið undanfarin misseri og það eru stjórnendur ekki heldur, svo ákveðið var að skipta um yfirlækni.

   09.06.2026 09:00
Yfirlæknirinn óvænt rekinn frá Arsenal

Slapp
banner
banner
banner