Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   þri 09. júní 2026 21:54
Sverrir Örn Einarsson
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Eimskip
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Íslands stóð svo sannarlega í ströngu í leik Íslands gegn Spáni á Laugardalsvelli fyrr í kvöld. Lokatölur 6-1 fyrir heimsmeistaralið Spánar sem sýndi mátt sinn í kvöld. Glódís var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum og ræddi um leikinn.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  6 Spánn

„Auðvitað er maður bara hundfúl, það er aldrei gaman að tapa og hvað þá skít tapa. Auðvitað bara svekkjandi en svo veit maður líka hvað þær eru öflugar og við vorum ekki að gera nógu vel í að hindra þær í að spila sinn leik og þvi fór sem fór. “

Lið Spánar komst snemma yfir í leiknum en bætti við tveimur mörkum með skömmu millibili seint í hálfleiknum. Var það augnablikið sem að gerði út um leikinn?

„Við vissum að þetta væri brekka fyrir leik og fáum svo á okkur mark eftir fimm mínútur. Þá vissum við strax að þetta yrði ennþá erfiðara en náum ágætum tökum á leiknum í hálftíma. En svo er hundfúlt að fá á sig tvö mörk rétt fyrir hálfleik og er eitthvað sem á ekki að gerast hjá okkur.“

Sigrar Íslands á Úkraínu í riðlinum gera það samt að verkum að Ísland á auðveldari leið fyrir höndum í umspili um sæti á HM. Er Glódís bjartsýn fyrir hönd liðsins í komandi umspili?

„Ég ætla bara að vera hreinskilin ég veit ekki hvernig þetta umspil virkar og ég skil þetta ekki alveg. En auðvitað vill maður vera bjartsýn sem er kannski erfitt akkúrat núna þegar maður er langt niðri eftir þennan leik. Ég veit alveg hvað þessi hópur hefur í sér og hvað við getum á okkar dögum. Við bara náðum ekki þeim degi í dag.“

Sagði Glódís en allt viðtalið við hana má sjá hér að ofan.
Slapp
banner