Fotbolti.net
09.07.23 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Carrick kominn með sex nýja menn í hópinn (Staðfest)

Seny Dieng verður aðalmarkvörður Middlesbrough á næstu leiktíð. Zack Steffen, á láni frá Man City, varði mark liðsins á síðustu leiktíð.

Seny Dieng verður aðalmarkvörður Middlesbrough á næstu leiktíð. Zack Steffen, á láni frá Man City, varði mark liðsins á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska Championship félagið Middlesbrough er búið að krækja í sex nýja leikmenn í fyrri hluta félagsskiptaglugga sumarsins. Allir leikmennirnir voru kynntir á innan við viku og munu vera liðtækir fyrir Michael Carrick þegar tímabilið fer af stað.

Middlesbrough tapaði í undanúrslitum umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni og ætlar að styrkja hópinn til að berjast um að komast upp í deild þeirra bestu.

Nýjasta viðbótin við leikmannahópinn er markvörðurinn Seny Dieng sem kemur frá QPR á óuppgefnu kaupverði. Hann er 28 ára gamall Senegali sem er varamarkvörður fyrir Edouard Mendy í landsliðinu.

Dieng var aðalmarkvörður QPR og er talið að Middlesborough hafi borgað um 2 milljónir punda til að kaupa hann. 

Fyrir það var félagið búið að krækja í kantmanninn Morgan Rogers frá Manchester City, sem er tvítugur og með 21 mark í 41 leik með unglingalandsliðum Englands. Rogers kom við sögu í 22 leikjum á láni hjá Blackpool á síðustu leiktíð, en tímabilið þar á undan spilaði hann 16 leiki á láni hjá Bournemouth er liðið fór upp í ensku úrvalsdeildina. 

Talið er að Rogers komi fyrir lítinn pening eða jafnvel á frjálsri sölu en Man City hafi sérstakan endurkaupsrétt á honum og háa prósentutölu af næstu sölu.

Alex Gilbert er þá einnig genginn í raðir Boro en hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Brentford rann út.  Gilbert, sem er 21 árs gamall og landsliðsmaður U21 liðs Írlands, samþykkti ekki samningstilboðið frá úrvalsdeildarfélaginu. Hann var fyrirliði varaliðs Brentford á síðustu leiktíð og kom að 24 mörkum í varaliðadeildinni.

Það voru fleiri félög sem höfðu áhuga á honum en að lokum vann Boro kapphlaupið. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið alveg eins og Dieng og Rogers.

Þá eru Samuel Silvera, Tom Glover og Rav van den Berg einnig mættir til félagsins. Silvera er 22 ára kantmaður frá Ástralíu sem gerði góða hluti með Central Coast Mariners á síðustu leiktíð. Kaupverðið er óuppgefið en talið nema um hálfri milljón punda og gerir leikmaðurinn þriggja ára samning.

Glover er einnig Ástrali og hefur verið markvörður Melbourne City FC undanfarin ár. Hann er 25 ára gamall og gerir fjögurra ára samning.

Að lokum er miðvörðurinn Van den Berg, 19 ára, mættur en hann er stór og stæðilegur og átti gott tímabil með PEC Zwolle í Hollandi. Van den Berg á 8 leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands og er eldri bróðir hans, Sepp van den Berg, samningsbundinn Liverpool.


Carrick tók við Middlesbrough síðasta október og hefur gert flotta hluti með liðið.

Carrick tók við Middlesbrough síðasta október og hefur gert flotta hluti með liðið.

Canon

Mynd: Getty Images

Carrick kominn með sex nýja menn í hópinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.