Leeds lánar Aaronson til Union Berlin (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bandaríski landsliðsmaðurinn Brenden Aaronson er mættur til Union Berlin í Þýskalandi en hann skrifaði í dag undir eins árs lánssamning við félagið.
Aaronson átti slakt tímabil með Leeds eins og margir aðrir liðsfélagar hans er liðið féll niður í ensku B-deildina.
Þessi 22 ára gamli sóknartengiliður kom til Leeds frá Salzburg á síðasta ári en hann var með bestu leikmönnum austurrísku deildarinnar og var umtalaður.
Mörg stór félög höfðu áhuga á honum en Aaronson valdi Leeds og sér líklega eftir því í dag.
Aaronson mun eyða komandi tímabili með þýska liðinu Union Berlin en skiptin voru staðfest í dag.
Ágætis tilbreyting fyrir Aaronson sem mun fá að spila í Meistaradeild Evrópu og í einu besta liði þýsku deildarinnar á síðustu leiktíð.