Miðjumaður með fimmtán A-landsleiki fyrir Holland semur við Panathinaikos (Staðfest)

Tonny Vilhena í leik með hollenska landsliðinu

Mynd: EPA

Hollenski miðjumaðurinn Tonny Vilhena gekk í raðir gríska félagsins Panathinaikos frá Espanyol á Spáni en hann skrifaði undir fjögurra ára samning.
Vilhena er 28 ára gamallog spilað lengst af sínum ferli með Feyenoord í Hollandi.
Leikmaðurinn hefur einnig spilað fyrir Krasnodar en hefur síðustu tvö ár verið á mála hjá Espanyol á Spáni.
Á síðasta tímabili spilaði hann með Salernitana á láni frá Espanyol en hann skoraði 4 mörk í 26 leikjum í Seríu A.
Vilhena hefur nú tekið óvænt skref til Grikklands en hann mun spila með Panathinaikos næstu fjögur árin og verður því liðsfélagi Harðar Björgvins Magnússonar.
Hollendingurinn á 15 A-landsleiki að baki fyrir hollenska landsliðið.

??Tonny Vilhena is Green??#Panathinaikos #PAOFC #Transfers pic.twitter.com/0KaPsbrpmw
— Panathinaikos F.C. (@paofc_) July 7, 2023