PSG kaupir Hernandez frá Bayern (Staðfest)

Mynd: PSG

Mynd: PSG
Franska félagið Paris Saint-Germain staðfesti í dag komu Lucas Hernandez frá Bayern München.
Varnarmaðurinn knái kemur til PSG fyrir 45 milljónir evra en hann stóðst læknisskoðun áður en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið.
Hernandez, sem er 27 ára gamall miðvörður, getur einnig spilað vinstri bakvörð.
Hann á 33 landsleiki fyrir Frakkland en er nú að fara spila í fyrsta sinn í frönsku deildinni.
Leikmaðurinn fæddist í Marseille en flutti ungur að árum til Spánar með fjölskyldu sinni þar sem faðir hans var atvinnumaður.
Hernandez fetaði í fótspor föður síns og lék með Atlético Madríd áður en hann hélt til Bayern árið 2019.

Paris Saint-Germain is delighted to announce the signing of Lucas Hernández.
— Paris Saint-Germain (@PSG_English) July 9, 2023
The French international defender has signed a five-year contract with the Club.
???? #WelcomeHernández ????