Fotbolti.net
09.07.23 - 11:30
Brynjar Ingi Erluson

Willy Caballero er nýr aðstoðarþjálfari Leicester (Staðfest)

Willy Caballero verður aðstoðarmaður Maresca

Willy Caballero verður aðstoðarmaður Maresca

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum markvörðurinn, Willy Caballero, er nýr aðstoðarþjálfari Leicester City í ensku B-deildinni en þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í dag.
Argentínumaðurinn kallaði þetta gott eftir að hafa fallið með Southampton niður í B-deildina eftir leiktíðina.

Hann spilaði 36 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Manchester City, Chelsea og Southampton.

Caballero fær nú nýtt hlutverk en hann hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Leicester City í B-deildinni.

Enzo Maresca tók við stjórastöðunni þar eftir tímabilið og ákvað að ráða Caballero í teymið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.