09.08.21 - 21:55
Brynjar Ingi Erluson
Di Marzio: Roma búið að ná samkomulagi við Chelsea um Abraham

Tammy Abraham gæti farið til Roma

Mynd: Getty Images

Tammy Abraham gæti farið til Roma

Mynd: Getty Images
Gianluca Di Marzio, einn virtasti blaðamaður Ítalíu, segir að Roma sé búið að ná samkomulagi við Chelsea um kaup á enska framherjanum Tammy Abraham.
Romelu Lukaku er að semja við Chelsea á næstu sólarhringum og hrinti það af stað keðjuverkun.
Roma er að missa Edin Dzeko til Inter og þurfa Rómverjar því framherja en samkvæmt Di Marzio þá hefur félagið komist að samkomulagi við Chelsea um kaup á Tammy Abraham.
Koma Lukaku til Chelsea þýðir það að Abraham er frjálst að fara en hann er metinn á 40 milljónir punda.
Abraham á sjálfur eftir að ákveða framtíð sína en Aston Villa og Arsenal hafa einnig áhuga á honum.