Fotbolti.net
09.08.21 - 09:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Southampton búið að finna arftaka Danny Ings

Adam Armstrong.

Adam Armstrong.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton virðist vera búið að finna sóknarmanninn til að leysa Danny Ings af hólmi.
Samkvæmt Sky Sports þá er Southampton búið að komast að samkomulagi við Blackburn Rovers um kaupverð á leikmanninum. The Athletic segir svipaða sögu og fullyrðir að kaupverðið sé um 15 milljónir punda.

Southampton seldi Ings til Aston Villa í síðustu viku fyrir 25 milljónir punda.

Armstrong skoraði 29 mörk í öllum keppnum fyrir Blackburn á síðustu leiktíð.

Hann er uppalinn í Newcastle en var seldur þaðan fyrir 1,8 milljónir punda fyrir þremur árum síðan. Armstrong hefur einnig verið orðaður við Crystal Palace og Norwich í sumar en Southampton er líklegasti áfangastaður hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.