Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. ágúst 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Heil umferð í Bestu deild kvenna
Valur spilar við Keflavík
Valur spilar við Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tólfta umferð Bestu deildar kvenna fer fram í kvöld en þar spilar topplið Vals við Keflavík á meðan Breiðablik heimsækir Stjörnuna.

Valur er á toppnum með 29 stig en liðið fer á HS Orku-völlinn og spilar við Keflavík sem er í 7. sæti með 10 stig.

Breiðablik, sem er í öðru sæti með 27 stig, fer á Samsung-völlinn og mætir þar Stjörnunni sem er í 3. sæti með 23 stig.

Hér fyrir neðan má sjá alla leiki dagsins.

Leikir dagsins:

Besta-deild kvenna
17:30 Þór/KA-Afturelding (SaltPay-völlurinn)
17:30 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
19:15 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)
20:00 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)
20:00 Þróttur R.-Selfoss (AVIS völlurinn)

4. deild karla - D-riðill
20:00 Ýmir-Hamar (Kórinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner