09.08.26
UTAN VALLAR: Ársreikningar Vals og Víkings bornir saman við Nordsjælland og FC Thun
SÆVAR ÞÓR SVEINSSON
3. umferð í forkeppnum félagsliðakeppna karla hjá UEFA fer fram um þessar mundir. Tvö íslensk lið eru ennþá að berjast um sæti í félagsliðakeppnunum, en það eru Valur og Víkingur. Til þess að átta sig á því hvort íslensku liðin eigi möguleika gegn sínum andstæðingum er hægt að líta á ýmsa þætti, einn þeirra eru ársreikningar liðanna. Í þessari grein verður ársreikningur Vals borinn saman við ársreikning Nordsjælland og ársreikningur Víkings borinn saman við ársreikning FC Thun.

