Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 09. september 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kane fimmti markahæsti leikmaður Englands
Harry Kane
Harry Kane
Mynd: EPA
Harry Kane, framherji Tottenham Hotspur, er nú fimmti markahæsti landsliðsmaður Englands frá upphafi.

Hann skoraði 41. mark sitt fyrir enska landsliðið í 1-1 jafnteflinu gegn Póllandi í gær.

Markið var einkar glæsilegt en hann hamraði knettinum af löngu færi í hægra hornið.

Kane er nú fimmti markahæsti leikmaðurinn og aðeins tólf mörkum frá metinu.

Wayne Rooney er markahæstur með 53 mörk en næstur á eftir honum kemur Bobby Charlton með 49 mörk. Gary Lineker er þriðji með 48 stykki og svo Jimmy Greaves með 44 mörk. Kane kemur svo næstur á eftir.
Athugasemdir
banner
banner