Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. september 2022 19:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild kvenna: Mögulegur úrslitaleikur í lokaumferðinni
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH 0-0 Fylkir

FH fékk Fylki í heimsókn í leik dagsins í Lengjudeild kvenna. Með sigri hefði FH tryggt sér sigurinn í deildinni en liðið er þegar komið með sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð.


Bæði lið fengu fengu færi til að skora í fyrri hálfleik en allt kom fyrir ekki og það var markalaust þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik.

Þetta var mjög opinn og skemmtilegur leikur en þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka voru FHingar í hörkufæri en Tinna Brá Magnúsdóttir markvörður Fylkis náði að bjarga.

Stuttu síðar áttu Fylkiskonur skot í slá en þær vildu meina að boltinn hefði farið yfir línuna en markið ekki dæmt.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner