Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 09. september 2022 19:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neymar hrósar Kane - Messi og Suarez snillingar
Mynd: EPA

Neymar leikmaður PSG var í áhugaverðu viðtali hjá DAZN Canada þar sem hann var meðal annars beðinn um að lýsa leikmönnum í einu orði.


Hann var meðal annars beðinn um að lýsa Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og Luis Suarez en hann hafði það sama að segja um þá, Snillingar (e. Genius).

Þá var hann beðinn um að lýsa Harry Kane framherja Tottenham í einu orði og þá sagði hann að sá enski væri mjög greindur leikmaður.

Kane er frábær fótboltamaður en kannski ekki sá hraðasti, vel staðsettur og með góðar sendingar. Hann hefur skorað 188 mörk í 288 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner