Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörður Liverpool, segist eiga Jurgen Klopp stjóra liðsins allt að þakka.
Alexander-Arnold spilaði sinn fyrsta leik með Liverpool undir stjórn Klopp í október árið 2016. Síðan þá hefur hann spilað 97 leiki og komist í enska landsliðið.
Alexander-Arnold spilaði sinn fyrsta leik með Liverpool undir stjórn Klopp í október árið 2016. Síðan þá hefur hann spilað 97 leiki og komist í enska landsliðið.
Aðspurður hvað hann eigi Klopp að þakka sagði Alexander-Arnold:
„Allt í rauninni. Maður veit ekki hvað hefði gerst án hans."
„Hann hefur gefið mér flest tækifæri og fleiri tækifæri en ég hefði getað óskað mér."
„Hann hefur sett mikið traust á mig persónulega og ég hef reynt að endurgjalda það."
Athugasemdir