Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 09. október 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Alisson æfir aukalega - Stefnir á Man Utd leikinn
Mynd: Getty Images
Alisson, markvörður Liverpool, er að æfa aukalega þessa dagana til að komast aftur í sitt fyrra form.

Brasilíumaðurinn meiddist illa á kálfa í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn Norwich og hefur verið frá keppni síðan þá.

Alisson stefnir nú á að snúa aftur í lið Liverpool um þarnæstu helgi en liðið mætir þá erkifjendum sínum í Manchester United.

John Achterberg, markmannsþjálfari Liverpool, er með Alisson í sérstökum æfingum þessa dagana og vonir standa til að hann verði klár gegn United.

Adrian, sem kom til Liverpool í ágúst, hefur staðið vaktina í markinu í byrjun tímabils og staðið sig vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner