Knattspyrnudeild Stjörnunnar tilkynnti í dag komu Vignis Jóhannessonar til félagsins en hann kemur frá FH.
Vignir er fæddur árið 1990 og hefur spilað með FH-ingum frá 2017 en hann var í samkeppni við Gunnar Nielsen um stöðuna.
Hann er uppalinn í Breiðablik og á 118 leiki í deild- og bikar fyrir Blika, Aftureldingu, Njarðvík, Selfoss og auðvitað FH.
Vignir kemur til með að berjast við Harald Björnsson um markvarðarstöðuna í Garðabænum en hann fyllir þar skarð Guðjóns Orra Sigurjónssonar sem fór frá Stjörnunni eftir tímabilið.
Markvarðarmálin eru því klár hjá Stjörnumönnum en Haraldur framlengdi samning sinn við félagið til næstu þriggja ára í gær.
Vignir Jóhannesson hefur samið við Stjörnuna!
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) October 9, 2019
Það eru okkur gleðitíðindi að tilkynna að Vignir Jóhannesson hefur samið við Stjörnuna og mun bætast í leikmanna hóp okkar fyrir komandi tímabil. Vigni er ætlað að fylla skarð Guðjóns Orra sem kvaddi Stjörnunna núna í lok tímabilsins. pic.twitter.com/vwkU4TmPtv
Athugasemdir