09.10.20 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Onana með Covid-19 - Sagður missa af leik gegn Liverpool

Andre Onana, markvörður Ajax.

Mynd: Getty Images

Andre Onana, markvörður Ajax.

Mynd: Getty Images
Andre Onana, hinn öflugi markvörður Ajax í Hollandi, hefur verið greindur með kórónuveiruna.
Þetta kemur fram í <a href="https://www.rtlnieuws.nl/sport/voetbal/artikel/5189038/onana-test-positief-op-corona-en-mist-liverpool-thuis" target="_blank">hollenskum fjölmiðlum</a> en þar er vitnað í fjölmiðla frá Kamerún.

Ef satt reynist þá þarf Onana að fara í sóttkví og mun hann missa af næstu leikjum Ajax.
Ajax mætir Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni næstu helgi og á síðan leik við Liverpool á heimavelli í Meistaradeildinni á miðvikudeginum þar á eftir.
Onana er gríðarlega mikilvægur fyrir Ajax. Varamarkverðir liðsins eru hinn tvítugi Kjell Scherpen og hinn 38 ára gamli Maarten Steklenburg.