Segja allt hafa verið á suðupunkti í kvöldverði hjá Blikum

Flosi Eiríksson, formaður Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Flosi Eiríksson, formaður Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, vildi ekkert tjá sig þegar 433.is spurði hann út í uppákomu sem sögð er hafa átt sér stað í kvöldverði hjá leikmönnum, stjórn og starfsfólki Breiðabliks í gær.
Samkvæmt heimildum fréttasíðunnar þá kastaðist í kekki milli aðila í þessu kvöldverðarboði og sagt að Óskar Hrafn Þorvaldsson og eiginkona hans hafi yfirgefið staðinn með nokkrum látum .
Samkvæmt heimildum 433.is er Óskar verulega ósáttur við þá ákvörðun stjórnarinnar að leyfa honum ekki að klára riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Óskar hafði tilkynnt stjórninni í síðustu viku að hann ætlaði að hætta hjá félaginu eftir riðlakeppnina en stjórnin hafi svo ákveðið að flýta viðskilnaðnum.
„Ég hef ekkert um það að segja," sagði Flosi þegar hann var spurður út í kvöldverðinn.

Halldór Árnason sem var aðstoðarmaður Óskars tekur við Breiðabliki en hann gerði þriggja ára samning við félagið. Óskar er sjálfur kominn til Noregs en hann kemur til greina í þjálfarastarf Haugesund. Þá vill KR fá hann til að taka við liði sínu.

TENGT EFNI
Óskar ósáttur með tímasetninguna: Alls ekki útilokað að ég taki við KR
Halldór Árnason sem var aðstoðarmaður Óskars tekur við Breiðabliki en hann gerði þriggja ára samning við félagið. Óskar er sjálfur kominn til Noregs en hann kemur til greina í þjálfarastarf Haugesund. Þá vill KR fá hann til að taka við liði sínu.

TENGT EFNI
Dóri Árna ráðinn þjálfari Breiðabliks (Staðfest) - Þriggja ára samningur
Heimild: 433.is

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð