Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal lánaði í dag Emile Smith Rowe til Huddersfield Town í ensku B-deildinni en hann verður þar út tímabilið.
Smith Rowe er 19 ára gamall en hann hefur fengið fá tækifæri með liðinu á þessari leiktíð.
Hann hefur aðeins spilað sex leiki í öllum keppnum og hafa flestar mínúturnar komið í Evrópudeildinni.
Smith Rowe er nú mættur til Huddersfield Town en hann verður þar á láni út tímabilið.
Huddersfield féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta ári og hefur tekið stórt fall en liðið er í 20. sæti B-deildarinnar sem stendur.
Athugasemdir