Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. janúar 2020 11:35
Magnús Már Einarsson
Diego Jóhannesson til Cartagena á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
FC Cartagena í spænsku C-deildinni hefur fengið hægri bakvörðinn Diego Jóhannesson á láni frá Real Oviedo út tímabilið.

Hinn 26 ára gamli á að baki þrjá landsleiki fyrir Ísland og kom sá fyrsti árið 2016.

Diego hefur glímt við meiðsli í vetur og einnig fallið úr náðinni hjá þjálfara Oviedo.

Cartagena er á toppnum í sínum riðli í spænsku C-deildinni og á góða möguleika á sæti í B-deildinni að ári.


Athugasemdir
banner
banner