Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. janúar 2020 20:55
Brynjar Ingi Erluson
Patrick Cutrone til Fiorentina (Staðfest)
Patrick Cutrone skrifar undir hjá Fiorentina
Patrick Cutrone skrifar undir hjá Fiorentina
Mynd: Twitter
Ítalska félagið Fiorentina tilkynnti í dag ítalska framherjann Patrick Cutrone en hann kemur á tveggja ára láni frá Wolves.

Cutrone, sem er 22 ára gamall, kom til Wolves frá AC Milan fyrir um það bil 18 milljónir evra síðasta sumar en skoraði aðeins 3 mörk í 24 leikjum með Wolves.

Wolves hefur verið í viðræðum við Fiorentina síðustu daga og gengu skiptin í gegn í dag.

Cutrone mun eyða næstu tveimur árum á láni hjá Fiorentina en eftir að láninu lýkur mun Fiorentina kaupa hann á 16 milljónir evra.

Ítalski framherjinn á einn landsleik að baki fyrir Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner