Fotbolti.net
10.01.21 - 14:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stoltur faðir grét við það að sjá son sinn koma inn á

Declan Thompson.

Declan Thompson.

Canon

Mynd: Getty Images

Það verða til skemmtilegar sögur í enska FA-bikarnum ár hvert.
Í ár má til dæmis nefna Adele söngva Chorley og viðureign Marine og Tottenham á eftir. Marine er í áttundu efstu deild og Tottenham eitt besta lið úrvalsdeildarinnar.



Í gær vann Sheffield Wednesday 2-0 sigur á Exeter. Sheffield Wednesday var aðeins með fjóra menn á bekknum vegna Covid-vandamála og á meðal varamanna var hinn 18 ára gamli Declan Thompson.

Thompson hefur gengið í gegnum mikið í lífi sínu. Þegar hann var fimm ára var hann greindur með Perthes sjúkdóminn. Hann þurfti að fara í nokkrar skurðaðgerðir og var hann í hjólastól í 18 mánuði. Foreldrum hans var tjáð af læknum að strákurinn þeirra myndi mögulega aldrei geta gengið aftur, hvað þá spila fótbolta.

Thompson gafst hins vegar ekki upp og síðasta sumar skrifaði hann undir sinn fyrsta samning við Wednesday. Tilfinningarnar báru föður hans ofurliði eins og sjá má hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.