Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. febrúar 2021 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Undanúrslit á Ítalíu og Spáni í dag
Börsungar heimsækja Sevilla.
Börsungar heimsækja Sevilla.
Mynd: Getty Images
Það er leikið í undanúrslitunum í ítalska og spænska bikarnum á þessum miðvikudegi.

Það er leikið í tveggja leikja einvígum í báðum keppnum en fyrri leikirnir eru búnir á Ítalíu.

Í kvöld mætast Atalanta og Napoli en fyrri leikur liðanna - á heimavelli Napoli - endaði markalaus. Það er því allt opið fyrir leikinn í kvöld en sigurliðið mun mæta Juventus í úrslitaleiknum.

Á Spáni í kvöld mætast Sevilla og Barcelona í fyrri leik sínum í undanúrslitunum. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 20:00.

miðvikudagur 10. febrúar

ITALY: National Cup
19:45 Atalanta - Napoli

SPAIN: National cup
20:00 Sevilla - Barcelona
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner