Fotbolti.net
10.02.22 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Stefnir í atvinnumennsku en ætlar fyrst að klára grunnskólann almennilega

Stefnir í atvinnumennsku en ætlar fyrst að klára grunnskólann almennilega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Galdur Guðmundsson var í byrjunarliði Breiðabliks í leiknum gegn danska toppliðinu Midtjylland á Atlantic æfingamótinu í Portúgal á sunnudag.

Þessi efnilegi leikmaður verður sextán ára í apríl og er sá yngsti sem er í hópi Blika í Portúgal.
„Ferðin hefur verið frábær, stórkostleg. Það er frábært að vera hérna og gaman að æfa fótbolta við geggjaðar aðstæður," segir Galdur í viðtali við blikar.is.

Í viðtalinu segir hann að markmið sitt sé að vinna sér inn fleiri mínútur með Breiðabliki og koma sér síðan út í atvinnumennsku. Áður en hugurinn stefni út sé þó mikilvægt að klára grunnskólann almennilega en hann er í tíunda bekk.

Lokaleikur Blika á Atlantic Cup verður á föstudaginn gegn Íslendingaliðinu FC Kaupmannahöfn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.