Fotbolti.net
10.02.23 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Sampdoria selur Colley til Tyrklands (Staðfest)

Sampdoria selur Colley til Tyrklands (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska félagið Besiktas hefur fest kaup á Omar Colley frá Sampdoria en greint var frá vistaskiptunum í gær.
Colley er 26 ára gamall Gambíumaður sem kom til Sampdoria frá Genk árið 2018.

Hann lék 136 leiki og skoraði 3 mörk á tíma sínum hjá ítalska félaginu og var fastamaður í vörn liðsins á þessari leiktíð.

Sampdoria keypti hins vegar tvo miðverði í janúarglugganum og var Colley því frjálst að fara.

Varnarmaðurinn náði samkomulagi við Besiktas á dögunum og var síðan gengið frá skiptunum í gær en Besiktas greiðir 2,5 milljónir evra fyrir Colley.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.