Fotbolti.net
10.02.23 - 23:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Thiago Silva búinn að skrifa undir nýjan samning (Staðfest)

Thiago Silva búinn að skrifa undir nýjan samning (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur nú staðfest að Thiago Silva er búinn að skrifa undir samning við félagið. Samningurinn gildir til sumarsins 2024.

Silva er 38 ára en hann gekk til liðs við Chelsea árið 2020 frá PSG. Hann hefur unnið Meistaradeildina og komist í úrslitu FA bikarsins og deildabikarsins með félaginu.

Graham Potter stjóri liðsins er himinlifandi með fréttirnar.

„Hann er frábær manneskja, frábær leikmaður fyrir okkur. Mjög mikilvægur innan sem og utan vallar. Hann er í lykilhutverki að hjálpa ungum leikmönnum, leiðbeina þeim á sama tíma og hann er að leggja sig allan fram svo hann geti hjálpað okkur inn á vellinum," sagði Potter.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.