Fotbolti.net
10.03.22 - 14:05
Elvar Geir Magnússon

Chelsea spilar í kvöld - Ríkisstjórnin opin fyrir því að félagið verði selt

Stuðningsmaður Chelsea með syni sínum fyrir utan Stamford Bridge.

Stuðningsmaður Chelsea með syni sínum fyrir utan Stamford Bridge.

Canon

Mynd: Getty Images

Staða Chelsea er í mikilli óvissu eftir að að eigandi félagsins, Roman Abramovich, <a href="https://fotbolti.net/news/10-03-2022/abramovich-kominn-a-refsilista-bretlands-chelsea-ma-ekki-selja-mida" target="_blank">var settur á refsilista Bretlands</a> og eignir hans frystar.

Chelsea mun halda áfram að spila og mun leikur liðsins gegn Norwich City í kvöld fara fram eins og áætlað var. Enska úrvalsdeildin hefur staðfest þetta.
Í yfirlýsingu frá Chelsea segir að félagið muni leita eftir leiðbeiningum frá stjórnvöldum vegna þeirra áhrifa sem þetta hefur á félagið en það muni verða starfrækt áfram á eins eðlilegan hátt og mögulegt er.

Nadine Dorries menntamálaráðherra Bretlands hefur staðfest að ríkisstjórnin sé opin fyrir því að gefa leyfi á að félagið verði selt.

„Það er möguleiki á því að undanþága verði gefin fyrir því að Chelsea verði selt, en Roman Abramovich mun ekki geta hagnast á þeirri sölu," segir Dorries.

Hún var spurð að því hversu lengi þessar refsiaðgerðir myndu gilda en hún sagði: „Því get ég ekki svarað."

Allt um mál Chelsea og Abramovich
09:44 Abramovich á refsilista Bretlands og eignir frystar - Má ekki selja Chelsea
10:57 Ráðherra: Gætum þess að Chelsea hljóti ekki óþarfa skaða
11:49 Skelfilegar afleiðingar fyrir Chelsea - Verður ekki félagið sem við höfum þekkt
12:22 Brentford óskar eftir svörum
13:02 Stjórn Chelsea með neyðarfund og styrktaraðilar skoða sína stöðu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.