Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 10. apríl 2021 13:13
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Liverpool og Aston Villa: Mane bekkjaður á afmælisdaginn
Sadio Mane er á meðal varamanna í dag.
Sadio Mane er á meðal varamanna í dag.
Mynd: Getty Images
Liverpool og Aston Villa mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:00 en leikið er á Anfield í Liverpool.

Jurgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool gerir tvær breytingar á liðinu sínu. James Milner og Roberto Firminho koma inn í liðið en þeir Keita og Sadio Mane fara á bekkinn. Mane fagnar í dag 29 ára afmæli sínu. Ben Davies sem Liverpool keypti til að styrkja miðvarðarstöðuna í janúar á svo endurkomu í leikmannahópinn. Curtis Jones er tæpur og ekki í hóp í dag.

Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Phillips, Kabak, Robertson; Fabinho, Milner, Wijnaldum; Salah, Firmino, Jota.
Varamenn: Adrian, Thiago, Keita, Mane, Oxlade-Chamberlain, Tsimikas, Shaqiri, Davies, R Williams.

Aston Villa gerir líka tvær breytingar frá 3 - 1 sigri á Fulham síðustu helgi. Marvelous Nakamba og Trezeguet koma í stað Anwar el Ghazi og Morgan Sanson, sem er ekki einu sinni á bekknum. Kortney Hause er í hóp í fyrsta sinn síðan á nýársdag eftir að hafa jafnað sig af ökklameiðslum.

Aston Villa: Martínez, Cash, Konsa, Mings, Targett, Nakamba, Luiz, McGinn, Trezeguet, Traore, Watkins.
Athugasemdir
banner
banner