Brotnaði þegar hann fór sjálfur í tæklingu - „Fann að það var ekki allt með felldu"

Enginn heimsendir, en vissulega grautfúlt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki fyrsta tæklingin sem Jón fer í á ferlinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sneri til baka um mitt síðasta tímabil eftir krossbandsslit.

Eyjamaðurinn Jón Ingason ökklabrotnaði þegar hann fór í tæklingu í leik gegn Breiðabliki í síðasta mánuði. Þau meiðsli hafa haldið honum frá vellinum síðan og eru tvær vikur í að staðan verði skoðuð að nýju.
Fótbolti.net ræddi við varnarmanninn í dag.

„Ég er akkúrat núna staddur á sjúkrahúsinu í sjúkraþjálfun hjá Ella. Ég er í spelku og á hækjum. Það kom í ljós að það væri lítið brot í ökklanum, á kúlunni innanverðri. Það á að gróa eðlilega."
„Ég þarf blessunarlega ekki að fara í aðgerð og ekki að fara í gifs. Þetta á að gróa að sjálfu sér og talað um að taka stöðuna eftir tvær vikur. Ég tek bara einn dag í einu, tímabilið er ekkert búið. Það er bara smá pása og svo að vinna sig aftur inn í liðið," sagði Jón.
Fékk ónotatilfinningu
Hann brotnaði þegar hann fór í tæklingu gegn Ágústi Hlynssyni.
„Tækling sem ég fór sjálfur í og kom verr út úr en Ágúst. Ég hef eitthvað fest mig í grasinu eða fengið högg á þetta svæði. Þetta gerist svo hratt að maður áttar sig ekki almennilega á því. Ég fékk ónotatilfinningu um leið og þetta gerist og fer út af í kjölfarið."
„Þetta bólgnar upp, bólgan fer svo og maður reynir að æfa, ætlaði mér að ná leiknum gegn Keflavík sem var eftir leikinn gegn Blikum. Ég tók þátt í æfingunni deginum fyrir leik og fann að það var ekki allt með felldu. Í myndatöku kom í ljós að það væri einhver sprunga."
Enginn heimsendir
„Þetta er enginn heimsendir, en vissulega grautfúlt. Mótið er nýbyrjað og maður er búinn að ná heilu undirbúningstímabili eftir þetta krossbandaævintýri sem maður er búinn að setja í baksýnisspegilinn. Svona er þetta bara, einn dagur í einu og tímabilið er alls ekki búið. Það er bara að horfa bjartsýnn og jákvæður á framhaldið."
„Ég má stíga í löppina og á að styðja mig við hækjur og er í þessari spelku til að minnka álagið á ökklann, leyfa þessu að gróa eðlilega. Ég passa mig að hafa ekki of mikinn þunga á þessu og að það myndist engin bólga."
„Ég þarf að gefa þessu allavega tvær vikur þangað til ég get farið að skokka og hlaupa aftur. Þangað til er það bara að vinna í öðrum þáttum og halda sér í góðu standi svo maður komist fyrr á völlinn þegar maður kemst af stað."
„Nei nei, þetta truflar mig ekkert í daglegu lífi. Ég kemst alveg ferða minna og allt svoleiðis. Vinnunnar vegna hefur þetta engin áhrif. Þegar maður kemur heim eftir daginn er það bara að setja löppina upp í loft í hálegu, kæla einu sinni á dag, ekkert sem hefur nein áhrif þannig á daglegt líf."
Jón sleit krossband fyrir tímabilið 2021 og kom til baka á miðju síðasta tímabili. Einhver endurupplifun á þeim meiðslum þegar þú lendir í að meiðast aftur?
„Ekkert þannig. Ég horfi bara í að ég er reynslunni ríkari eftir þetta krossbandaferli. Auðvitað er grautfúlt að meiðast, var á góðum stað persónulega og fullur tilhlökkunar fyrir tímabilinu sem er nýfarið af stað. En þetta er ekkert sem tekur mann úr jafnvægi eða keyrir mann í kaf. Þetta er bara verkefni sem maður þarf að sigrast á, og vonandi á sem stystum tíma," sagði Jón.
Hann hefur misst af síðustu þremur leikjum ÍBV og mun í það minnsta missa af næstu tveimur í viðbót.