Fotbolti.net
10.05.23 - 16:14
Hafliði Breiðfjörð

Heiðar Máni sá pabba sinn jogga inn á völlinn - „Hann hefði ekki drifið á markið!"

Feðgarnir eftir leik. Hermann er vinstra megin á myndinni og Heiðar Máni hægra megin.

Feðgarnir eftir leik. Hermann er vinstra megin á myndinni og Heiðar Máni hægra megin.

Canon

Mynd: Aðsend

„Ég náði ekki skoti á hann, sem betur fer fyrir hann," sagði Hermann Albertsson í léttum tón við Fótbolta.net í dag. Hermann sem varð á sínum tíma Íslandmeistari með gullaldarliði FH spilar í dag með Kormáki/Hvöt í 3. deildinni og mætti Heiðari Mána syni sínum og markverði ÍH í Skessunni á laugardaginn.

„Ef ég hefði náð skoti á hann þá hefði hann aldrei varið. Ég man allavega ekki eftir því að hann hafi nokkurn tíma varið frá mér," hélt Hermann áfram.

Búinn á því eftir einn sprett
Hermann sem verður fertugur í næsta mánuði var hluti af gullaldarliði FH en þangað kom hann frá Dalvík sumarið 2003 og var út tímabilið 2006. Á þeim tíma vann FH þrjá fyrstu Íslandmeistaratitlana í sögu félagsins. Hann kom inná í lok leiksins.

„Hann hefur ekki talað um neitt annað síðan leikurinn var flautaður af," sagði Heiðar Máni við Fótbolta.net í dag en hann var ekki á sama máli og sá gamli um hvað hefði gerst ef hann hefði náð skoti.

„Ég vil meina að hann hefði aldrei geta skorað á mig þó hann hefði spilað 90 mínútur og fengið víti. Hann var líka búinn á því eftir einn sprett. Ég held að hann hefði ekki drifið á markið!," bætti Heiðar Máni við.

Ómetanleg stund
Heiðar Máni er 17 ára gamall og spilaði einn leik með FH gegn Fram í Bestu-deildinni í fyrra en hann kom inná fyrir meiddan Gunnar Nielsen í hálfleik.

Hann var svo lánaður til ÍH sem er varalið félagsins í vor. Hann byrjaði leikinn og sá gamla manninn skokka inná í uppbótartíma.

„Þetta var sturlað og besta stund ferilsins á vellinum til þessa," hélt Heiðar Máni áfram. „Að sjá gamla jogga glottandi inná völlinn minnti mig pínulítið á það þegar hann vann mig 10-2 í úrslitaleik í garðinum heima. Það var ógleymanlegt að vera á sama velli og sá sem kenndi mér að sparka í bolta."

Hermann upplifði stundina eins og markvörðurinn ungi og sagði að lokum. „Fyrir mig var þetta ómentanleg stund að fá að knúsa hann eftir leik sem andstæðingur en ekki foreldri. Það skiptir mig engu þó svo að ég hafi bara fengið tvær mínútur inná vellinum."

Kormákur/Hvöt vann leikinn 1 - 2 en þetta var fyrsta umferð 3. deildarinnar.

Faðmlagið.

Faðmlagið.

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.