Fotbolti.net
10.06.13 - 19:40
Daníel Freyr Jónsson

Diakite, Cabral og Roberge til Sunderland (Staðfest)

Modibo Diakite.

Modibo Diakite.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá samningum við þrjá nýja leikmenn. Um er að ræða þá Valentic Roberge, Cabral og Modibo Diakite.
Allir koma þeir á frjálsri sölu til félagsins og koma þeir til liðs við félagið þann 1. júlí.

Roberge hefur undanfarin ár spilað með Maritimo í Portúgal, á meðan Cabral kemur frá Basel þar sem samningur hans var að renna út.

Diakite er þekktastur af leikmönnunum þremur, en hann hefur undanfarin ár leikið með Lazio með ágætum árangri. Hafði Sunderland betur í samkeppni við nokkur lið um undirskrift hans.

Eru þetta fyrstu leikmennirnir sem Ítalinn Paolo Di Canio kaupir til liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.