Fotbolti.net
10.06.15 - 12:26
Gunnar Birgisson

Raggi Sig: Ég veit að Cech er góður markvörður

Auglýsing
Raggi var ekki í marki á æfingunni.

Raggi var ekki í marki á æfingunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ragnar Sigurðsson leikmaður FK Krasnodar í Rússlandi og hafsent í íslenska landsliðinu var bjartsýnn á góð úrslit gegn Tékklandi á föstudaginn fyrir framan fullan Laugardalsvöll.

„Ég met líkurnar bara mjög góðar, við spiluðum ágætis leik móti þeim úti og við vorum að skapa færi en þeir voru kannski aðeins betri. Við höfum verið sterkir á heimavelli undanfarið og við ætlum að taka þrjú stig,\" sagði Ragnar í samtali við Fótbolti.net
Það mæddi mikið á Ragnari og hans félögum í vörninni sem og öllu liðinu í síðasta leik úti gegn Tékklandi en Ragnar hefur trú á því að þeir hafi lært mikið af leiknum úti í Pilzen.
„Við lærðum mikið af því hvernig þeir spiluðu og við ætlum að vera tilbúnir því ef þeir gera það aftur og svo erum við alltaf hættulegir fram á við þannig að við höfum ekkert að hræðast í þessum leik.\"

Aðspurður um hverjar helstu ógnir Tékkneska liðsins séu var Ragnar fljótur að svara því,
„Ég veit það ekki maður, ég veit ekki það mikið um fótbolta. Rosiscky er mjög góður og svo veit ég að Chech er góður markvörður, ég veit ekkert meira um þetta lið.\"

Ragnar er eins og áður segir leikmaður FK Krasnodar en þeir enduðu í þriðja sæti á nýafstöðnu tímabili.
„Mér gekk mjög vel og það var kannski enginn að búast við því að liðið myndi enda í þriðja sæti og við áttum meira að segja að lenda í öðru sæti. Við klúðruðum því sjálfir. Það gengur allt vel í Rússlandi og mér líður mjög vel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.