Fotbolti.net
10.06.18 - 09:19
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá: Gelendzhik

Maggi Gylfa: Alltaf búinn að sjá 1-1 í kortunum

Auglýsing
Maggi ræðir við Aron Einar Gunnarsson á æfingu Íslands í dag.

Maggi ræðir við Aron Einar Gunnarsson á æfingu Íslands í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Fyrsta sólarhringinn virðist allt vera í toppmálum,\" sagði Magnús Gylfason í landsliðsnefnd KSÍ við Fótbolta.net í dag fyrir æfingu liðsins í Gelendzhik.

Íslenska liðið var eitt á hóteli í Annecy á EM fyrir tveimur árum en nú hefur liðið hótelið ekki út af fyrir sig. Maggi og aðrir starsfmenn landsliðsins sjá um að hafa keppnir fyrir leikmenn á hótelinu til að stytta stundirnar á milli leikja.
„Það verður mikið af keppnum alla daga. Það verður skák, snóker, pílukast, púttkeppnir og nóg að gera,\" sagði Maggi.

Sex dagar eru í að Ísland mæti Argentínu í fyrsta leik á HM en sá leikur fer fram í Moskvu á laugardaginn.

„Ég er búinn að sjá alltaf 1-1 í kortunum og ég verð að halda áfram að vona það. Þetta verður stórkostlegur leikur,\" sagði Maggi. „Það hefur alltaf verið stefnan að fara upp úr riðlinum. Það hefur verið trúin og hún minnkar ekki neitt þegar við komum hingað.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.