Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. júní 2019 21:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
2. deild: Selfoss á toppinn
Ingi Rafn skoraði og lagði upp fyrir Selfoss í kvöld.
Ingi Rafn skoraði og lagði upp fyrir Selfoss í kvöld.
Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
Selfoss 2-0 KFG
1-0 Ingi Rafn Ingibergsson ('8)
2-0 Þormar Elvarsson ('68)

Selfoss tók í kvöld á móti KFG í lokaleik dagsins í 2. deild karla.

Ingi Rafn Ingibergsson kom Selfyssingum yfir strax á 8. mínútu. Antonio Tuta, markvörður KFG, fór í glæfralegt úthlaup og skoraði Ingi Rafn með skoti í autt markið af 35 metra færi.

Á 68. mínútu lagði Ingi Rafn upp annað mark Selfyssinga þegar Þormar Elvarsson mætti á nærstöng þegar Ingi Rafn gaf fyrir mark KFG.

Hrvoje Tokic fékk færi til þess að bæta við fyrir Selfyssinga en fleiri mörk voru ekki skoruð í kvöld.

Selfoss er með sigrinum komið á topp deildarinnar. Selfoss hefur þrettán stig að sex umferðum loknum. Víðir er einnig með þrettán stig. KFG er með níu stig í sjöunda sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner