Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 19:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sérfræðingarnir tóku Arnór Ingva og Loga af lífi
Arnór Ingvi Traustason
Arnór Ingvi Traustason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er marki undir í hálfleik gegn Norður-Írlandi í æfingaleik í Belfast. Isaac Price skoraði mark Norður-Íra eftir 36 mínútna leik eftir að Arnór Ingvi Traustason missti boltann á hættulegum stað.

Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 -  0 Ísland

Sérfræðingarnir Albert Brynjar Ingason og Lárus Orri Sigurðsson voru eðlilega ekki ánægðir með stöðuna þegar þeir ræddu málin í hálfleik í umfjöllun Stöðvar 2 Sport.

„Þetta er átakanlega lélegt. Mér fannst við byrja leikinn af krafti en svo fjaraði mjög hratt úr þessu."

„Logi (Tómasson) er búinn að vera skelfilegur, kraftlaus. Þegar hann kemst í fyrirgjafastöður er engin trú. Þetta er annar leikurinn sem hann byrjar sem hann er að eiga vondan leik,"
sagði Albert.

„Við verðum að stoppa þetta. Arnór Ingvi missir boltann beint fyrir framan vörnina og við fáum á okkur mark. Nú vil ég að Arnar setji niður fótinn og taki Arnór Ingva út og setji Stefán inn eða einhvern. Refsa honum bara fyrir þetta," sagði Lárus.

Arnar Gunnlaugsson svaraði kalli Lárusar og tók Arnór Ingva af velli í hálfleik fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson.
Athugasemdir
banner