Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 15:45
Elvar Geir Magnússon
Bikar Baddi gegn Val Gunnars - Spáð í 8-liða úrslitin
Baldvin Borgars og Valur Gunnars.
Baldvin Borgars og Valur Gunnars.
Mynd: Fótbolti.net
Báðir spá Stjörnusigri.
Báðir spá Stjörnusigri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Benedikt Daríus Garðarsson.
Benedikt Daríus Garðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8-liða úrslitin í Mjólkurbikarnum fara fram í vikunni en umferðin fer í gang með leik Aftureldingar og Stjörnunnar í kvöld. Tveir leikir verða svo á föstudag og einn á laugardag.

Baldvin Már Borgarsson og Valur Gunnarsson, sérfræðingar Fótbolta.net, spá í leikina og keppa sín á milli í spennandi keppni. Megi sá betri vinna.

Í kvöld: 19:30 Afturelding - Stjarnan

Bikar Baddi: 1-3
Garðbæingar sjá Laugardalsvöll í hyllingum og láta Mosfellinga ekki stöðva för sína þangað, Biddi LIT með stjörnuleik og klárar þetta fyrir bláklædda.

Valur Gunnars: 1-2
Þetta er ansi trikkí leikur. Bæði Jói 09 og Danni Finnst eru í banni hjá Stjörnunni og þá er ansi mikið farið af miðjusvæðinu. Þrátt fyrir tap í síðasta leik hafa Aftureldingarmenn verið flottir undanfarið en ég hallast að því að úrvalsdeildarliðið sé sterkara. Stjörnusigur í jöfnum leik.

Föstudagur: 17:30 Ægir - Breiðablik

Bikar Baddi: 0-5
Því miður verða mínir menn úr Höfninni lítið fyrirstaða fyrir Blikana, Arnar Logi missir líklegast hausinn og byrjar næstu bikarkeppni í banni.

Valur Gunnars: 0-3
Ægismenn eru sýnd veiði en ekki gefin eins og bikarsigurinn gegn KA sannaði rækilega. En þeir eru ekki nógu góðir til að vinna Blikana. Þægilegur Blikasigur þarna.

Föstudagur: 20:15 ÍA - Víkingur

Bikar Baddi: 1-1 (Víkingur vinnur í vító)
Víkingar lenda í vandræðum uppá Skaga, erfiður völlur og mikið undir, gestirnir klára þetta þó í vító.

Valur Gunnars: 1-3
Mig DAUÐlangar að spá óvæntum heimasigri hérna en ég get bara ekki spáð gegn þessi Víkingsliði. Bikar er bikar og það getur allt gerst en þetta Víkingslið er svo vel smurð vél að þeir vinna þennan.

Laugardagur: 14:00 Fylkir - Grótta

Bikar Baddi: 3-2
Stuð, stuð, þrumu þrumustuð eins og segir í laginu, þetta verður einhver Lengjudeildarveisla, Grótta skorar líklegast falleg mörk að venju en Heimir Guðjóns kann öll trixin í bókinni og meðal annars að vinna svona leiki, Bílabúð-Benna Daríus með stórleik.

Valur Gunnars: 1-2
Ég sá Fylkismenn gegn Þrótturum um daginn og sá leikur var ekki upp á marga fiska hjá þeim. Og það var beint eftir 5-1 tap gegn Aftureldingu. Á sama tíma hefur Grótta verið að koma mörgum á óvart og ég held þeir haldi því áfram og vinni þennan leik.
Slapp
banner