Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Lykill að árangri eða stærsta hindrunin?
Sæti 8 til 5
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Hollendingar eru með fínasta lið.
Hollendingar eru með fínasta lið.
Mynd: EPA
Virgil van Dijk er lykilmaður.
Virgil van Dijk er lykilmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Memphis er markahæsti leikmaður í sögu Hollands.
Memphis er markahæsti leikmaður í sögu Hollands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjóðverjar ætla sér stóra hluti.
Þjóðverjar ætla sér stóra hluti.
Mynd: EPA
Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands.
Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands.
Mynd: EPA
Joshua Kimmich og Jamal Musiala.
Joshua Kimmich og Jamal Musiala.
Mynd: EPA
Ronaldo er á sínu síðasta heimsmeistaramóti.
Ronaldo er á sínu síðasta heimsmeistaramóti.
Mynd: EPA
Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Portúgals.
Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Portúgals.
Mynd: EPA
Vitinha er stórkostlegur miðjumaður.
Vitinha er stórkostlegur miðjumaður.
Mynd: EPA
Bruno Fernandes átti geggjað tímabil með Manchester United.
Bruno Fernandes átti geggjað tímabil með Manchester United.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Brassarnir eru alltaf líklegir.
Brassarnir eru alltaf líklegir.
Mynd: EPA
Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu.
Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu.
Mynd: EPA
Vinicius er magnaður leikmaður.
Vinicius er magnaður leikmaður.
Mynd: EPA
Neymar fer á HM.
Neymar fer á HM.
Mynd: EPA
Nú förum við senn að ljúka kraftröðun okkar fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Núna er komið að þeim liðum sem eru rétt fyrir neðan allra bestu liðin.

8. Holland
Eru í 8. sæti á heimslistanum.

Það er eitthvað sérkennilegt við Holland á stórmótum. Þeir mæta nánast alltaf með lið sem virðist vera einu skrefi frá því að vera titilkandídat og þannig er raunin líka núna, allavega er útlitið þannig fyrir mót. Hollendingar fóru nokkuð sannfærandi í gegnum undankeppnina og hópurinn er fullur af leikmönnum sem eru komnir á besta aldur. Virgil van Dijk leiðir vörnina, Frenkie de Jong stjórnar miðjunni þegar hann er heill og svo ertu með leikmenn sem eru komnir með þá reynslu sem stundum hefur vantað upp á. Aðdragandinn að HM hefur þó ekki verið gallalaus. Ronald Koeman þarf að hafa áhyggjur af meiðslum lykilmanna, sérstaklega Memphis Depay og Frenkie de Jong, og þá er Jurrien Timber ekki að fara að vera með. Þá voru úrslitin í síðustu vináttuleikjum nokkuð misjöfn. Sigur gegn Noregi lofaði góðu en jafnteflið við Ekvador vakti spurningar og það sama má segja um tap gegn Alsír. Það breytir þó ekki því að Holland er eitt af þeim liðum sem getur unnið nánast hvern sem er á góðum degi. Þeir eru kannski ekki í allra fremsta hópi en ef hlutirnir falla rétt þá gætu þeir appelsínugulu farið mjög langt. Það hefur nefnilega gerst áður.

Þjálfarinn: Ronald Koeman er einn besti fótboltamaður sem komið hefur frá Hollandi og fær nú annað tækifæri sem landsliðsþjálfari. Hann hefur stundum verið gagnrýndur fyrir íhaldssamar ákvarðanir, en á sama tíma hefur hann yfir að ráða einu hæfileikaríkasta hollenska landsliði síðustu ára. Nú þarf hann að vinna stóru leikina. Koeman stýrði Hollandi fyrst frá 2018 til 2020, tók við Barcelona í stuttan tíma og sneri svo aftur í landsliðið árið 2023. Undir hans stjórn fór Holland í undanúrslitin á EM 2024 en tapaði gegn Englandi.

Lykilmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) er kletturinn sem allt byggist á. Fyrirliðinn er enn einn besti miðvörður heims þegar hann er upp á sitt besta og nærvera hans hefur gríðarleg áhrif á allt hollenska liðið. Hann fær það verkefni að leiða þessa kynslóð í átt að þeim árangri sem Hollendingar hafa beðið eftir svo lengi.

Gaman að fylgjast með: Memphis Depay (Corinthians) er fyrrum vonarstjarna sem fékk sjöuna hjá Manchester United á sínum tíma en það gekk ekki upp. Hann virðist þó alltaf fíla sig í hollenska landsliðsbúningnum og er markahæsti leikmaður í sögu þjóðar sem hefur átt sóknarmenn á borð við Marco van Basten, Robin van Persie og Ruud van Nistelrooy. Hann fer sínar eigin leiðir og spilar í dag með Corinthians í Brasilíu.

Leikir á HM: Japan í Dallas (14. júní); Svíþjóð í Houston (20. júní); Túnis í Kansas City (25. júní).

7. Þýskaland
Eru í 10. sæti á heimslistanum.

Það er skrítið að tala um Þýskaland sem spurningarmerki fyrir heimsmeistaramót, en þannig hefur staðan verið undanfarin ár. Þjóðin sem vann HM 2014 og komst reglulega í undanúrslit stórmóta hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu. Þjóðverjar féllu úr riðli á HM bæði 2018 og 2022 og hafa ekki komist lengra en í átta liða úrslit á síðustu fjórum stórmótum. Það er einfaldlega ekki árangur sem menn sætta sig við í Þýskalandi. Samt er erfitt að afskrifa Þjóðverja. Jafnvel þegar þeir eru ekki upp á sitt besta eru þeir enn Þjóðverjar. Julian Nagelsmann hefur smám saman verið að móta lið sem virðist hafa fundið ákveðinn takt á ný. Sóknarleikurinn lofar góðu og í síðustu landsleikjum fyrir mótið sýndi liðið bæði styrkleika sína og veikleika. Þjóðverjar unnu Sviss í sjö marka leik þar sem Florian Wirtz fór á kostum með tvö mörk og tvær stoðsendingar, en á sama tíma var varnarleikurinn ákveðið áhyggjuefni. Önnur spurning sem hefur fylgt liðinu er hver eigi að fylla skarðið sem leikmenn á borð við Miroslav Klose, Jürgen Klinsmann og Thomas Müller skildu eftir sig. Þýskaland hefur lengi verið þekkt fyrir markaskorara sem mæta á stórmót og skora þegar mest á reynir, en slíkur framherji virðist ekki vera til staðar núna. Þrátt fyrir það eru hæfileikarnir til staðar. Wirtz, Musiala og Kimmich mynda kjarna sem flest landslið myndu þiggja og ef Nagelsmann tekst að herða vörnina gæti Þýskaland orðið eitt af þeim liðum sem enginn vill mæta í útsláttarkeppninni. Kannski eru þeir ekki jafn ógnvekjandi og áður, en saga HM kennir okkur að það er sjaldan skynsamlegt að vanmeta Þjóðverja.

Þjálfarinn: Julian Nagelsmann er einn yngsti og mest spennandi þjálfari Evrópu. Svo hefur verið sagt í einhver tíu ár núna og það er enn staðan. Eftir að hafa stýrt félögum á borð við Hoffenheim, Leipzig og Bayern München tók hann við landsliðinu með það verkefni að endurreisa stolt þýska fótboltans. Hann hefur komið með ferskar hugmyndir og meiri áræðni í leik liðsins, en nú þarf hann að rísa upp þegar pressan er mest.

Lykilmaður: Joshua Kimmich (Bayern München) er hjartað í þessu þýska liði. Hann getur spilað á miðjunni eða í bakverði, getur í raun bara spilað allar stöður á vellinum. Hann stjórnar tempóinu og setur tóninn með vinnuframlagi sínu. Fáir leikmenn eru jafn mikilvægir fyrir landslið sitt og Kimmich er fyrir Þýskaland. Hefur verið ótrúlega vanmetinn leikmaður í gegnum tíðina.

Gaman að fylgjast með: Jamal Musiala (Bayern München) er einn skemmtilegasti leikmaður heims um þessar mundir. Hann virðist geta dansað í gegnum varnir með boltann límdan við fótinn og býr yfir þeirri tegund af hæfileikum sem fær fólk til að rísa úr sætunum. Musiala hefur þegar sannað sig á hæsta stigi og nú þarf hann að taka að sér enn stærra hlutverk í þýska liðinu. Það verður einnig gaman að fylgjast með risanum Nick Woltemade í fremstu víglínu.

Leikir á HM: Curacao í Houston (14. júní); Fílabeinsströndin í Toronto (20. júní); Ekvador í New York (25. júní).

6. Portúgal
Eru í 5. sæti á heimslistanum.

Það er erfitt að ræða Portúgal fyrir þetta heimsmeistaramót án þess að byrja á manninum sem hefur fylgt liðinu í meira en tvo áratugi. Cristiano Ronaldo er kominn á fimmtugsaldurinn og þetta verður að öllum líkindum síðasta heimsmeistaramótið hans. Eina stóra bikarinn sem vantar í safnið er heimsmeistarabikarinn sjálfur. Spurningin sem hangir yfir portúgalska liðinu er: Verður Ronaldo lykillinn að árangri eða stærsta hindrunin? Hann mun ekki leggja á sig mikla vinnu fyrir liðið án bolta og aðrir þurfa að vinna fyrir hann. Portúgal kemur inn í mótið með einn hæfileikaríkasta hóp heims. Þeir hafa á síðustu árum unnið bæði Evrópumótið og Þjóðadeildina. Á pappír er þetta lið sem ætti að geta farið alla leið. Samt er alltaf eitthvað sem veldur efasemdum. Roberto Martínez hefur verið gagnrýndur fyrir taktískar ákvarðanir sínar og hvernig hann nýtir þann gríðarlega mannauð sem hann hefur yfir að ráða. Undirbúningurinn fyrir mótið var ekki sérlega sannfærandi. Markalaust jafntefli gegn Mexíkó og 2-0 sigur gegn Bandaríkjunum voru ekkert sérlega frábærir leikir. Það breytir þó ekki því að Portúgal virðist hafa ótrúlega mikla breidd. Leikmenn sem myndu byrja hjá flestum landsliðum heims eru stundum aðeins varamenn hjá Portúgal. Þegar litið er yfir hópinn er erfitt að finna mörg lið sem státa af jafn miklum gæðum. Hvernig ætlarðu til dæmis að stilla upp þessari miðju? Vitinha, Bruno Fernandes, Bernardo Silva og Joao Neves eru allir þarna. Nú snýst málið um að láta þessa hæfileika vinna saman þegar stóru leikirnir hefjast. Ef það tekst gæti Portúgal loksins komist í sinn fyrsta HM úrslitaleik.

Þjálfarinn: Roberto Martínez vann Þjóðadeildina með Portúgal en gagnrýnin hefur aldrei horfið alveg. Margir telja hann hafa yfir að ráða einum sterkasta leikmannahópi heims og því sé pressan meiri en ella. Martinez er gríðarlega viðkunnalegur náungi sem stýrði Belgíu áður en hann tók við Portúgal en þar áður var hann stjóri Everton, Wigan og Swansea í enska boltanum.

Lykilmaður: Vitinha (PSG) hefur á síðustu árum þróast í einn besta miðjumann Evrópu. Saga hans er mögnuð þar sem hann var ekkert frábær þegar hann lék með Wolves á Englandi en svo í dag er hann lykilmaður hjá PSG sem hefur unnið Meistaradeildina tvö ár í röð. Hann stjórnar hraða leikja, heldur boltanum á hreyfingu og virðist alltaf finna réttu lausnina undir pressu. Á meðan Ronaldo fær fyrirsagnirnar er Vitinha orðinn maðurinn sem lætur vélina ganga.

Gaman að fylgjast með: Cristiano Ronaldo (Al-Nassr) er einn allra besti fótboltamaður sögunnar. Fimmfaldur Gullboltahafi, markahæsti landsliðsmaður sögunnar og einn besti leikmaður sem sést hefur á fótboltavelli. Nú, 41 árs gamall, stendur hann frammi fyrir síðasta kaflanum á landsliðsferlinum. Ronaldo hefur unnið nær allt sem hægt er að vinna, en heimsmeistarabikarinn vantar. Það verður ótrúlega áhugavert að fylgjast með honum á þessu móti.

Leikir á HM: Kongó í Houston (17. júní); Úsbekistan í Houston (23. júní); Kólumbía í Miami (27. júní).

5. Brasilía
Eru í 6. sæti á heimslistanum.

Það er næstum rangt að setja Brasilíu svona neðarlega í kraftröðun fyrir heimsmeistaramót. Fimmfaldir heimsmeistararnir eru vanir því að mæta á stórmót sem sigurstranglegasta liðið, en nú er stemningin aðeins önnur. Eftir óstöðuga undankeppni, þjálfaraskipti og ýmsar spurningar um jafnvægi liðsins virðist heimurinn ekki alveg vita hvað hann á að halda um Brasilíu. En kannski er það akkúrat það sem gerir þá hættulega. Brasilíumenn hafa ekki orðið heimsmeistarar síðan árið 2002, þegar Ronaldo mætti með eina furðulegustu hárgreiðslu sögunnar og skaut Brössum á topp heimsins. Síðan þá hafa komið lið frá Brasilíu sem áttu að vinna HM, en ekkert þeirra hefur komist alla leið. Núna er Carlo Ancelotti mættur til leiks. Einn sigursælasti þjálfari allra tíma hefur tekið að sér verkefnið að koma Brasilíu aftur á topp heimsins. Fyrstu mánuðirnir hafa verið ágætir. Brasilía tapaði naumlega fyrir Frökkum í erfiðum æfingaleik en svaraði með sannfærandi sigri á Króatíu í mars. Mikilvægara var þó að hópurinn sýndi breidd. Nokkrir lykilmenn voru fjarverandi vegna meiðsla en varamenn á borð við Luiz Henrique og Endrick nýttu tækifærið. Það er kannski ekki jafn mikið af ósnertanlegum stórstjörnum og áður, en það er samt erfitt að finna lið með meiri einstaklingsgæði. Vinicius Junior er orðinn andlit brasilíska landsliðsins, Raphinha getur unnið leiki upp á eigin spýtur og miðjan er full af leikmönnum sem spila hjá stærstu félögum Evrópu. Svo er Neymar mættur aftur! Þetta verður skemmtilegt.

Þjálfarinn: Carlo Ancelotti er lifandi goðsögn. Ítalinn hefur unnið Meistaradeildina oftar en nokkur annar þjálfari og safnað titlum hjá félögum á borð við AC Milan, Chelsea, Paris Saint-Germain, Bayern München og Real Madrid. Nú stendur hann frammi fyrir einni stærstu áskorun ferilsins: Að enda 24 ára bið Brasilíu eftir heimsmeistaratitli.

Lykilmaður: Vinicius Junior (Real Madrid) er maðurinn sem Brasilía byggir sóknarleik sinn í kringum. Þegar hann er upp á sitt besta er hann nánast óstöðvandi og hann er einn öflugasti sóknarleikmaður heims. Hann á hins vegar sína gagnrýnendur og ef hlutirnir ganga ekki upp hjá honum, þá er hann fljótur að missa hausinn. Ef Brasilía ætlar sér langt verður Vinicius að vera með hausinn rétt skrúfaðan á.

Gaman að fylgjast með: Neymar (Santos) fær að vera með á þessu móti. Hann er enn stærsta nafnið í brasilískum fótbolta þrátt fyrir að vera kominn á síðari hluta ferilsins. Ferill hans með landsliðinu hefur verið stórkostlegur. Hann er markahæsti landsliðsmaður í sögu Brasilíu en heimsmeistarabikarinn vantar - eins og hjá Ronaldo. Fyrir marga Brasilíumenn gæti þetta verið síðasta tækifærið til að sjá Neymar í brasilísku landsliðstreyjunni. Ef hann nær að vera heill og í formi gæti hann enn skrifað einn kafla til viðbótar í eina merkustu fótboltasögu samtímans.

Leikir á HM: Marokkó í New York (13. júní); Haítí í Philadelphia (19. júní); Skotland í Miami (24. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner