Afturelding 3 - 1 Stjarnan
0-1 Heiðar Ægisson ('5 )
1-1 Birkir Már Sævarsson ('64 )
2-1 Bart Kooistra ('66 )
3-1 Birkir Már Sævarsson ('75 )
Rautt spjald: Örvar Eggertsson, Stjarnan ('89) Lestu um leikinn
0-1 Heiðar Ægisson ('5 )
1-1 Birkir Már Sævarsson ('64 )
2-1 Bart Kooistra ('66 )
3-1 Birkir Már Sævarsson ('75 )
Rautt spjald: Örvar Eggertsson, Stjarnan ('89) Lestu um leikinn
Afturelding er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir endurkomusigur á Stjörnunni í Mosfellsbæ í kvöld. Liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Stjarnan varð fyrir áfalli fyrir leikinn þegar Gustav Kjeldsen datt út úr byrjunarliðinu vegna meiðsla. Heiðar Ægisson kom inn í liðið í hans stað og gerði sér lítið fyrir og kom Garðbæingum yfir snemma leiks.
Hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Birni Snæ Ingasyni.
Afturelding fékk tvö mjög góð færi eftir löng innköst frá Axeli Óskari Andréssyni undir lok fyrri hálfleiks. Fyrst var það Jón Vignir Pétursson sem setti boltann yfir markið og síðan átti Gunnar Bergmann Sigmarsson skot í stöngina.
Stjarnan gat síðan tvöfaldað forystuna strax í upphafi seinni hálfleiks en Arnar Daði Jóhannesson varði í tvígang.
Afturelding jafnaði metin eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hinn 41 árs gamli Birkir Már Sævarsson var réttur maður á réttum stað og stýrði boltanum í netið af stuttu færi.
Strax í kjölfarið komst Afturelding yfir þegar Bart Kooistra skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bjarti Bjarma Barkarsyni.
Það var síðan Birkir Már sem innsiglaði sigur Aftureldingar og sæti í undanúrslitum í fyrsta sinn í sögu félagsins. Óðinn Bjarkason átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar. Birkir tók frábærlega á móti boltanum og fór framhjá Árna Snæ Ólafssyni og skoraði af öryggi.
Stjarnan lék manni færri síðustu mínúturnar þar sem Örvar Eggertsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar hann hrinti Bjarti Bjarma.



