Daði Berg Jónsson hefur ekki spilað meistaraflokksbolta frá því í júlí í fyrra og er óvist hvenær hann getur byrjað að spila aftur.
Stígur Diljan Þórðarson hefur þá verið frá síðustu níu eftir að hafa byrjað tímabilið, er að glíma við svokallað „turf toe" og er ekki orðinn verkjlaus. Það er líka óvíst hvenær hann getur mætt aftur á völlinn.

„Ég get ekki sagt að þeir séu að nálgast, þeir eru ennþá töluvert frá því að snúa aftur á völlinn. Þeir eru báðir tveir að glíma við mjög leiðinleg meiðsli, meiðsli þar sem er spurningarmerki með tímarammann."
„Þegar um beinbrot er að ræða veit maður alltaf u.þ.b. hvenær menn geta mætt aftur, en þetta eru verstu meiðslin þar sem óvissan er mikil. Það er verið að reyna koma þeim í lag, þetta hefur verið gífurlega erfitt ferli fyrir þá tvo," saðgi Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinsgs, sem ræddi við Fótbolta.net í gær.
Daði Berg, sem valinn var efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins af Fótbolta.net í fyrra, fór í aðgerð á mjöðm í vetur eftir að hafa glímt við íþrótta kviðslit.
Framundan hjá Víkingi er bikarleikur gegn ÍA á Akranesi á föstudag.