Það fóru nokkrir vináttulandsleikir fram fyrr í dag og í kvöld þar sem nokkrar HM-þjóðir mættu til leiks.
Austur-Kongó spilaði við Síle í Frakklandi eftir að leikurinn var færður frá Spáni vegna ótta við nýjan Ebóluveirufaraldur.
Kongó tapaði þar þrátt fyrir að hafa verið sterkara liðið í tíðindalitlum slag. Þetta var síðasti leikur Kongó fyrir fyrsta leik sinn í riðlakeppni HM sem verður gegn sterkri fótboltaþjóð Portúgal 17. júní, en Síle komst ekki á lokamótið.
Sádi-Arabía og Senegal mættust þá í HM-slag í Texas en hvorugu liði tókst að skora, svo niðurstaðan varð markalaust jafntefli.
Sádarnir fengu bestu færin en tókst ekki að skora framhjá Édouard Mendy.
Fleiri leikir fóru fram á milli þjóða sem fara ekki á HM og má sjá úrslitin hér fyrir neðan. Dominik Szoboszlai átti mark og stoðsendingu í sigri Ungverjalands gegn Kasakstan.
Austur-Kongó 1 - 2 Síle
Sádi-Arabía 0 - 0 Senegal
Ungverjaland 3 - 1 Kasakstan
Aserbaídsjan 2 - 1 San Marínó
Tógó 5 - 1 Benín
Líbería 3 - 1 Síerra Leóne
Vanúatú 2 - 2 Fídjí
Miðbaugs-Gínea 0 - 1 Kómoreyjar
Filippseyjar 5 - 1 Mjanmar
Kína 0 - 0 Taíland
Kambódía 2 - 0 Hong Kong
Indónesía 1 - 0 Mósambík
Kirgistan 0 - 0 Palestína
Armenía 1 - 1 Moldavía
Eþíópía 1 - 1 Malaví
Tadsíkistan 1 - 1 Indland
Belarús 2 - 2 Búrkína Fasó
Angóla 3 - 0 Mið-Afríkulýðveldið
Rússland 3 - 0 Trínidad og Tóbagó
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


