Mpanzu skrifar söguna með Luton (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Pelly Ruddock Mpanzu er búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við Luton Town og verður þar með fyrsti leikmaður sögunnar til að spila fyrir sama félag í öllum deildum enska boltans.
Mpanzu gekk til liðs við Luton á láni frá West Ham United þegar Luton var í ensku utandeildinni haustið 2013.
Hann naut sín í botn með Luton og ákvað að yfirgefa West Ham til að gera samning við utandeildarfélagið, sem fór beint upp um deild eftir komu Mpanzu.
Síðan þá hefur Luton farið upp enska deildakerfið hægt og rólega þar til félagið tryggði sér loks þátttöku í ensku úrvalsdeildinni, deild þeirra bestu, með sigri í Championship umspilinu.
Mpanzu er eini leikmaður Luton sem hefur farið alla þessa vegferð með félaginu. Hann er þegar kominn í sögubækurnar en afrek hans verður enn stærra eftir að hann spilar fyrsta úrvalsdeildarleik ferilsins.
Mpanzu er 29 ára gamall og á 367 keppnisleiki að baki fyrir Luton, auk tveggja landsleikja fyrir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó.
Hann hefur því sitt ellefta tímabil með Luton í haust en hann lék 37 leiki fyrir félagið á síðustu leiktíð.
PPPP is here to stay! ??@PellyRuddock | #COYH
— Luton Town FC (@LutonTown) July 10, 2023


Mynd: Getty Images




