Fotbolti.net
10.07.23 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sigrún Ella í Hauka (Staðfest)

Sigrún Ella í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Hertz
Sigrún Ella Einarsdóttir spilaði í gær sinn fyrsta leik fyrir Hauka eftir að hafa fengið félagaskipti frá Stjörnunni fyrir helgi.

Haukar eru í 2. deild og því hægt að fá félagaskipti utan félagskiptagluggans sem gildir í efstu deildum.
Sigrún Ella, sem er 31 árs, skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið og var í byrjunarliðinu gegn KH í gær. Hún fór af velli í lok leiks þegar staðan var orðin 0-3 fyrir Hauka á Valsvellinum.

„Sigrún Ella er fótboltaáhugafólki að góðu kunn enda er hún gríðarlega reynslumikill leikmaður. Hún býr yfir miklum gæðum og á m.a. að baki 2 A landsleiki auk fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Íslands."

„Sigrún Ella er sóknarsinnaður leikmaður og hefur skorað 88 mörk í 236 mótsleikjum hér á landi með Stjörnunni og FH. Að auki lék hún með Fiorentina á Ítalíu tímabilið 2017-2018. Haukar fagna komu Sigrúnar Ellu á Ásvelli og hlakka til samstarfsins,"
segir í færslu Hauka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.