Fotbolti.net
10.08.21 - 20:39
Sverrir Örn Einarsson

Reynir: Ég veit ekki hvað var í gangi

Auglýsing
Reynir var á skotskónum í kvöld gegn Fjölni

Reynir var á skotskónum í kvöld gegn Fjölni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
<i>„Ég veit ekki hvað var í gangi en þetta tímabil ég hef aldrei skorað jafn mikið og er farinn að horfa meira á markið og tek þessi þrjú færi sem ég fæ á einhverjum 5 mínútum og blessunarlega fóru þau inn. “</i> Sagði Reynir Haraldsson hetja ÍR sem gerði sér lítið fyrir og setti þrennu á fimm mínútna kafla í síðari hálfleik gegn Fjölni þegar ÍR sló út Lengjudeildarliðið 3-2 eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik.
Það þykir gott fyrir sóknarmenn almennt að skora þrennu og nokkuð afrek út af fyrir sig. En það að bakvörður setji þrennu á jafn stuttum kafla og Reynir gerði í kvöld hlýtur að teljast fágætt. Hefur Reynir sjálfur heyrt um annað eins?

„Ég hef ekki heyrt um annað eins en ég kem oft í þær stöður að færið er í boði og ég veit ekki hvort aðrir bakverðir séu ekki að horfa jafnmikið á markið og ég en ég prófa bara að skjóta á markið og hann fer inn.“

Reynir var að lokum spurður hvort hann ætti sér einhvern óskamótherja í 8.liða úrslitum.

„Ég segi KR heima. Fá minn mann Emil Ásmundsson og fá hann til að spila sig í form á móti okkur. “

Sagði Reynir en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.